Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. október 2015 16:32
Magnús Már Einarsson
Klopp mættur til Liverpool - 35 þúsund fylgdust með fluginu
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp er mættur til Englands til að skrifa undir samning við Liverpool.

Klopp kom með flugi frá Þýskalandi til Liverpool nú síðdegis.

35 þúsund manns fylgdust með flugi Klopp á flightradar24.com þar sem hægt er að fylgjast með flugumferð í heiminum.

Það segir ýmislegt um spennuna á meðal stuðningsmanna Liverpool fyrir komu Klopp til félagsins.

Liverpool hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 9:00 í fyrramálið þar sem Klopp verður kynntur sem nýr stjóri.
Athugasemdir
banner
banner