Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. október 2015 15:04
Elvar Geir Magnússon
Liverpool boðar til fréttamannafundar 9 í fyrramálið
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp verður kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Liverpool á morgun.

Félagið hefur boðað til fréttamannafundar á morgun klukkan 10 að staðartíma en það er 9 að íslenskum tíma.

Það verður því í fyrramálið sem hinn frægi (Staðfest) svigi mætir en langflestir stuðningsmenn Liverpool eru gríðarlega spenntir fyrir þessum nýja stjóra.

Nafn Klopp kom upp í umræðuna hjá stuðningsmönnum Liverpool um leið og hitna fór undir Brendan Rodgers en Rodgers var svo rekinn eftir jafnteflisleik gegn Everton á sunnudag.

Liverpool verður þriðja félagið sem Klopp verður aðalþjálfari hjá á stjóraferlinum en hann var með Mainz 2001-2008 og náði svo eftirtektarverðum árangri hjá Borussia Dortmund þar sem hann starfaði 2008-2015.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner