Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. október 2015 10:10
Magnús Már Einarsson
Sama þjálfarateymi hjá KR næsta sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Guðjónsson verður áfram þjálfari KR næsta sumar en þetta staðfesti Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag.

Bjarni lét hafa eftir sér í viðtölum eftir lokaumferðina að hann myndi halda áfram með liðið svo lengi sem krafta hans væri óskað í Vesturbænum.

Kristinn staðfesti við Fótbolta.net í dag að KR muni vera með sama þjálfarateymi næsta sumar.

„Eins og gengur og gerist þá setjast menn niður og fara yfir sviðið. Það eru uppsagnarákvæði á báða vegu á samningum í dag en við vinnum út frá því sem er í gangi," sagði Kristinn um þjálfaramálin.

Guðmundur Benediktsson og Henrik Bödker voru Bjarna til aðstoðar í sumar og verða það áfram.

KR endaði í 3. sæti í Pepsi-deildinni og fór í bikarúrslit þar sem liðið tapaði 2-0 gegn Val.
Athugasemdir
banner
banner