Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. október 2015 13:37
Magnús Már Einarsson
Sky: Klopp búinn að semja við Liverpool
Mynd: Getty Images
Sky Sports í Þýskalandi segir að Jurgen Klopp sé búinn að semja við Liverpool.

Búist er við að samningurinn sé til þriggja ára en Liverpool ætti að staðfesta þetta síðar í dag eða á morgun.

Klopp tekur við Liverpool af Brendan Rodgers sem var rekinn um síðustu helgi.

Hinn 48 ára gamli Klopp var síðast þjálfari Borussia Dortmund en hann tók sér frí frá fótbolta eftir að hann hætti þar.

Fyrsti leikur Liverpool undir stjórn Klopp verður gegn Tottenham annan laugardag.

Klopp verður formlega kynntur sem nýr stjóri Liverpool á fréttamannafundi klukkan 9 í fyrramálið.
Athugasemdir
banner
banner
banner