Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 08. nóvember 2015 12:05
Arnar Geir Halldórsson
Klopp: Henderson er fyrirliðinn minn
Jordan Henderson
Jordan Henderson
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson þarf ekki að óttast að missa fyrirliðastöðuna hjá Liverpool þó nýr stjóri sé tekinn við liðinu.

Henderson hefur verið frá vegna meiðsla undanfarnar vikur og hefur af þeim sökum ekki spilað síðan Jurgen Klopp tók við liðinu.

James Milner hefur haft fyrirliðabandið á meðan en Liverpool hefur ekki tapað leik síðan Klopp tók við. Hann segir ekki koma til greina að skipta um fyrirliða.

„Ég efaðist ekki um þetta í eina sekúndu. Ég veit ekki hver tók þess ákvörðun, kannski var það liðið."

„Ég hef hitt hann og hann er algjör leiðtogi. Við vonumst allir til þess að endurheimta hann fljótlega og að sjálfsögðu verður Hendo áfram fyrirliði,"
segir Klopp


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner