Íþróttafréttamaðurinn Graeme Bailey segir í frétt sem birtist á HITC Sport í dag að ensku úrvalsdeildarfélögin Everton og Tottenham hafi augastað á íslenska landsliðsmanninum Herði Björgvini Magnússyni.
Hörður gekk í raðir Bristol City í sumar og hefur leikið afbragðsvel fyrir liðið í ensku Championship-deildinni þar sem hann leikur sem miðvörður.
Sagt er að njósnarar úr úrvalsdeildinni hafi verið gestir á hverjum leik Bristol að undanförnu til að fylgjast með þessum 23 ára Íslendingi.
Fullyrt er að Everton og Tottenham gætu gert tilboð í janúaglugganum en það þyrfti um tíu milljónir punda til að fá samþykki Bristol.
Hörður er í íslenska landsliðshópnum sem er í Parma í æfingabúðum fyrir stórleik gegn Króatíu í Zagreb á laugardag. Króatía og Ísland eru jöfn að stigum á toppi riðilsins í undankeppni HM.



