08.11.17 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Eina eftirsjáin á 11 ára ferli eru árin inn í skápnum\"

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Robbie Rogers hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna til hliðar.
Rogers, sem er þrítugur að aldri, varð fyrsti leikmaðurinn í MLS-deildinni til að opinbera það að hann væri samkynhneigður.
Hann endaði feril sinn hjá LA Galaxy, en hann segir að það eina sem hann sjái á eftir séu árin sem hann eyddi í skápnum.
<i>„Sem ungur drengur dreymdi mig um að verða atvinnumaður í fótbolta og spila fyrir þjóð mína fyrir framan heiminn,\"</I> segir í yfirlýsingu sem Rogers sendi frá sér á Instagram.

„Mín eina eftirsjá á 11 ára ferli mínum eru árin sem ég eyddi í skápnum,\" segir hann enn fremur.
Auk þess að leika með LA Galaxy lék Rogers með Herenveen, Columbus Crew, Leeds og Stevenage á ferli sínum. Hann lék 18 landsleiki fyrir Bandaríkin og skoraði í þeim tvö mörk.