Theodór Elmar Bjarnason spilaði seinni hálfleikinn þegar Ísland tapaði 2-1 í vináttulandsleik gegn Tékklandi í hitanum í Katar í dag.
„Ég var nokkuð ánægður með mína innkomu, kom með kraft í þetta og náði að halda boltanum vel fyrir liðið," sagði Elmar nokkuð sprækur eftir leikinn í Doha.
Hann lagði upp mark Íslands í leiknum fyrir félaga sinn, Kjartan Henry Finnbogason.
„Ég reyndi að gera að það sem ég er góður í og það er pirrandi að þeir hafi skorað þetta seinna mark þar sem mér fannst við vera með þá undir pressu í seinni hálfleiknum."

Lestu um leikinn: Ísland 1 - 2 Tékkland
Elmar er í baráttu um að vinna sér sæti í hópnum sem fer til Rússlands á HM næsta sumar.
„Ég vona að ég hafi sýnt jákvæða punkta í dag og hann (Heimir) veit hvað ég stend fyrir. Maður verður að grípa þau tækifæri sem maður fær, maður fær ekki oft annað og þriðja tækifæri í fótbolta."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan. Þar ræðir Elmar m.a. mikið um feril sinn hingað til í tyrknesku B-deildinni. Þar spilar hann með liði sem heitir Elazigspor.
Athugasemdir