„Við áttum að skora fleiri mörk í fyrri hálfleik. Við fengum mjög góð færi og klikkuðum á þeim. Þeir refsuðu fyrir það," sagði Jóhann Berg Guðmundsson við Fótbolta.net eftir 2-1 tapið gegn tékkum í dag.
Jóhann Berg spilaði fyrri hálfleikinn í dag og átti fína spretti.
Jóhann Berg spilaði fyrri hálfleikinn í dag og átti fína spretti.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 2 Tékkland
Íslenska liðið var ógnandi í byrjun leiks en þá fékk Viðar Örn Kjartansson meðal annars dauðafæri.
„Við vildum keyra á þá fyrstu tíu mínúturnar. Viðar fékk frábært færi og hann sagðist eiga erfitt með að sofa í nótt eftir að hafa klikkað á því. Svona er þetta bara. Það er eins gott að þetta var þetta bara æfingaleikur."
Ísland mætir Katar á þriðjudaginn í öðrum vináttuleik. „Það er ekkert annað í boði en að vinna þann leik til að laga það hvað þetta var slappt í dag," sagði Jói.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir