Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 08. nóvember 2017 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristján: Hef séð hann spila frá því hann var sex ára
Við undirskrift í dag.
Við undirskrift í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Orri Rafn Sigurðarson
Kristján Guðmundsson.
Kristján Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum mjög ánægðir að geta tilkynnt fyrsta leikmanninn, Ágúst Leó, framherji sem skorar mikið af mörkum. Það hefur tekið tíma að semja við menn og finna réttu mennina, en það er bara fínt því þá vanda menn sig enn frekar," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir fyrsti nýji leikmaður Eyjamanna fyrir næsta tímabil var tilkynntur í höfuðstöðvum Eimskips í dag.

Ágúst Leó Björnsson skrifaði undir þriggja ára samning en hann kemur til ÍBV frá Stjörnunni.

Aðspurður segist Kristján hafa fylgst með Ágústi mjög lengi.

„Ég hef séð hann spila fótbolta frá því hann var sex ára gamall, svona meira og minna. Hann er strákur sem hefur ótrúlegan áhuga á fótbolta, hann hugsar ekki um neitt annað."

„Mig grunar að hann komi á óvart með okkur næsta sumar."

Ágúst Leó er tvítugur en hann var á láni hjá Aftureldingu í 2. deildinni í sumar. Þar skoraði Ágúst þrettán mörk í tuttugu leikjum en hann kom til baka í sumar eftir að hafa fótbrotnað illa í 2. flokki Stjörnunnar árið 2016. Hann ætlar að flytja til Eyja í janúar.

„Þegar ég ræddi fyrst við Ágúst Leó þá var ég hrifinn af því hvernig hann setti hlutina fram, hvernig hann talaði og hvernig hann hugsar. Ég var aldrei í vafa um að samningar myndu nást eftir að ég talaði við hann," sagði Kristján við Fótbolta.net.

ÍBV hefur misst marga leikmenn, en Kristján segir það ekki áhyggjuefni.

„Það er í rauninni ekki áhyggjuefni. Við erum að missa fleiri leikmenn en við hefðum talið æskilegt, en það er það sem gerist í fótbolta. Þetta gefur öðrum möguleika."

„Við erum að færa leikmenn upp úr 2. flokki. Við erum með fjóra eða fimm leikmenn sem við ætlumst til að verði í 18-20 manna hópi ÍBV á næsta ári."

Hver eru markmið ÍBV fyrir næsta tímabil?

„Við ætlum að reyna að ýta okkur upp í toppinn og berjast við liðin sem hafa verið þar. Við ætlum að standa okkur vel í bikarnum og síðast en ekki síst standa okkur vel í Evrópudeildinni."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner