Heimild: Talksport
Sóknarmaðurinn hæfileikaríki Antoine Griezmann gæti yfirgefið herbúðir Atletico Madrid þegar félagaskiptaglugginn opnar á nýjan leik í janúar. Þetta herma heimildir AS á Spáni.
Samkvæmt AS eru forráðamenn Atletico ekki sáttir með Griezmann það sem af er þessu tímabili.
Samkvæmt AS eru forráðamenn Atletico ekki sáttir með Griezmann það sem af er þessu tímabili.
Hann hefur aðeins skorað tvö mörk í níu leikjum í spænsku úrvalsdeildinni hingað til.
Samkvæmt AS eru forráðamenn „orðnir pirraðir" með frammistöðu Griezmann og hann gæti verið á förum, sérstaklega í ljósi þess að Diego Costa verður gjaldgengur með Atletico í janúar.
Griezmann var nálægt því að fara frá Atletico síðasta sumar, en að lokum skrifaði undir nýjan samning. Hann sagðist ekki geta yfirgefið Atletico á þeim tímapunkti, en félagið var og er í félagaskiptabanni.
Nú gæti hann hins vegar förum og ef satt reynist er ljóst að hann
verður eftirsóttur. Hann hefur verið orðaður við Bayern og Barcelona, og þá má ekki gleyma Manchester United.
Athugasemdir