sun 08. desember 2013 15:30
Daníel Freyr Jónsson
Framdi sjálfsmorð eftir tap United í gær
Leikmenn United hafa ekki getað fagnað mikið á tímabilinu.
Leikmenn United hafa ekki getað fagnað mikið á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Kenýskur stuðningsmaður Manchester United framdi sjálfsmorð eftir tap liðsins gegn Newcastle í gær.

Lögreglan í Nairobi hefur greint frá því að John Jimmy Macharia, 23 ára gamall, hafi hoppað fram af sjö hæða húsi eftir að hafa horft á United tapa í annað sinn í röð í gær.

Macharia mun ekki hafa þolað það að horfa á United tapa tvisvar í röð, en liðið tapaði einnig fyrir Everton í liðinni viku.

,,Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við missum ungan mann vegna fótboltaleiks á Englandi, sem er mjög langt frá okkur. Þeir þurfa að læra að þetta er bara leikur," sagði lögreglustjórinn Benson Kibue.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner