Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. desember 2017 21:00
Ingólfur Stefánsson
Bale missir af leiknum gegn Sevilla
Bale hefur aðeins byrjað fjóra leiki í spænsku deildinni í vetur
Bale hefur aðeins byrjað fjóra leiki í spænsku deildinni í vetur
Mynd: GettyImages
Gareth Bale mun ekki spila fyrir Real Madrid gegn Sevilla í spænsku deildinni um helgina. Hann gæti þó tekið þátt í heimsmeistaramóti félagsliða sem hefst í næstu viku.

Bale sem hefur aðeins byrjað fjóra leiki fyrir Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu er enn að jafna sig eftir kálfameiðsli.

Zinedine Zidane þjálfari liðsins segir að það sé enn möguleiki á að Bale ferðist með liðinu til Sameinuðu Arabísku furstadæmanna fyrir undanúrslitin í heimsmeistarakeppninni.

„Bale verður ekki með á laugardaginn en hugmyndin er að hann verði klár í fyrsta leik heimsmeistarmótsins."

Þá er Raphael Varane varnarmaður liðsins einnig fjarri góðu gamni eftir að hafa haltrað útaf í 3-2 sigri á Dortmund í vikunni. Zidane segir þó að Varane muni ferðast með liðinu og verði vonandi klár í fyrsta leik heimsmeistaramóts félagsliða.
Athugasemdir
banner
banner
banner