Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 08. desember 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Carvajal í leikbann fyrir að láta spjalda sig viljandi
Mynd: Getty Images
Spænski bakvörðurinn Dani Carvajal missir af fyrri leik Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Carvajal missir af honum vegna þess að evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, telur hann hafa fengið viljandi gult spjald í 6-0 sigri gegn APOEL Nicosia.

Carvajal fékk gula spjaldið fyrir að tefja í uppbótartíma, en staðan var þá 6-0 fyrir Real.

Carvajal vildi fá gula spjaldið til að missa af síðasta riðlaleik Real gegn Borussia Dortmund og fara þá inn í útsláttarkeppnina án spjalda á bakinu.
Athugasemdir
banner
banner