Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. desember 2017 11:30
Elvar Geir Magnússon
Færir Jón Guðni sig um set?
Jón Guðni í landsleik í Katar.
Jón Guðni í landsleik í Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norr­köp­ing vill fram­lengja samn­ing­inn við Jón Guðna Fjóluson en hann hef­ur ekki tekið ákvörðun um framtíð sína. Mbl.is greinir frá og vitnar í frétt Norrköping Tidningar.

Sagt er að miðvörðurinn öflugi gæti yfirgefið Norrköping í næsta mánuði. Jón Guðni 29 ára gam­all og á 11 leiki að baki með ís­lenska landsliðinu.

„Þú vilt alltaf spila á hæsta mögu­lega stigi og ég verð ekki yngri. Ég veit að það er áhugi og ef ég sé eitt­hvað áhuga­vert þá mun ég skoða það. En það er langt frá áhuga að und­ir­rituðum samn­ingi," seg­ir Jón Guðni.

Í sum­ar var Jón Guðni meðal ann­ars orðaður við tyrk­neska liðið Konya­spor.
Athugasemdir
banner
banner