Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 08. desember 2017 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Roberto Carlos: Ronaldo langt frá því að vera búinn
Mynd: Getty Images
Brasilísku goðsagnirnar Roberto Carlos og Ronaldo hrósuðu Portúgalanum Cristiano Ronaldo fyrir að vinna Gullknöttinn í fimmta sinn.

Ronaldo vann knöttinn annað árið í röð og var verðlaunaafhendingin í gær. Ronaldo verður 33 ára í febrúar en telur Carlos að hann eigi enn mikið eftir.

„Það munu vera fleiri verðlaun, hann er alls ekki búinn. Hann er langt frá því að vera búinn," sagði Carlos.

Ronaldo hefur verið duglegur að bæta markamet á tímabilinu en á ferlinum er hann búinn að skora meira en 600 mörk.

„Hann á þessi verðlaun skilið og hér erum við mættir til að fagna með honum," sagði Ronaldo, brasilíski nafni hans sem gerði allt vitlaust í knattspyrnuheiminum undir lok síðustu aldar.
Athugasemdir
banner