Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 08. desember 2017 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo léttur: Langar í annað barn í jólagjöf
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo var í mjög góðu skapi þegar hann fékk sinn fimmta gullknött (e. Ballon d'Or) í gærkvöldi.

Ronaldo hefur um margra ára skeið verið í fremstu röð í boltanum en á þessu ári fagnaði hann sigri í spænsku deildinni og Meistaradeildinni með liði sínu, Real Madrid á Spáni. Hann varð auk þess markakóngur Meistaradeildarinnar.

Með því að vinna gullknöttinn fimm sinnum hefur Ronaldo (32 ára) jafnað met keppinautar síns, Lionel Messi (30 ára), sem einnig á fimm gullknetti. Ronaldo hefur fengið þennan heiður fjórum sinnum á síðustu fimm árum.

Á verðlaunaafhendingunni í gær, sem fram fór í Eiffel-turninum í París, var Ronaldo spurður hvað hann vildi fá í jólagjöf en því svaraði hann: „Nýtt barn," sagði Ronaldo og uppskar hlátur áður en hann tók svo fram að hann vildi sjö gullknetti og sjö börn.

Ronaldo á fyrir fjögur börn, en þrjú þeirra hefur hann eignast á þessu ári.

Kærasta Ronaldo, Georgina Rodriguez, var í salnum en miðað við svipbrigðin á henni var henni ekki skemmt.

Smelltu hér til að sjá myndband af þessu.
Athugasemdir
banner
banner