Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Benevento sé búið að tryggja sér brasilíska miðjumanninn Sandro.
Sandro stóðst læknisskoðun hjá félaginu í síðustu viku og kemur á lánssamning út tímabilið. Hann hefur glímt við erfið meiðsli á ferlinum og er sem stendur tæpur vegna hnémeiðsla.
Sandro stóðst læknisskoðun hjá félaginu í síðustu viku og kemur á lánssamning út tímabilið. Hann hefur glímt við erfið meiðsli á ferlinum og er sem stendur tæpur vegna hnémeiðsla.
Sandro kemur á láni frá tyrkneska félaginu Antalyaspor. Sandro lék 96 leiki fyrir Tottenham frá 2010 til 2014 og verður hann 29 ára gamall í mars.
Sky Italia greinir frá því að lánssamningnum fylgi kaupákvæði. Spili Sandro ákveðið marga leiki fyrir Benevento verður ítalska félagið að kaupa hann.
Benevento er á botni ítölsku deildarinnar með sjö stig eftir tvo sigra í síðustu tveimur umferðum.
Athugasemdir