Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. janúar 2018 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard er ennþá að melta félagsskipti Coutinho
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard segist ennþá vera að melta félagsskipti Philippe Coutinho til Barcelona.

Gerrard, sem er að gera góða hluti með U18 ára lið Liverpool, segist virða ákvörðun Coutinho að yfirgefa félagið.

„Ég er ennþá að melta þetta. Þetta er skellur fyrir alla stuðningsmenn Liverpool," sagði Gerrard við BT Sport.

„Þetta kemur mér ekki á óvart. Ég veit að Liverpool gerði allt í sínu valdi til að halda honum, en það var ekki hægt. Þetta er strákur frá Suður-Ameríku sem á sér einn draum, að spila fyrir Barcelona.

„Það efast enginn um að Liverpool muni sakna hans. Þetta er stórkostlegur knattspyrnumaður og frábær manneskja. Ég virði ákvörðun hans og óska honum alls hins besta."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner