Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. janúar 2018 20:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísrael: Viðar með tvennu í mikilvægum sigri
Viðar átti góðan leik.
Viðar átti góðan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Maccabi Tel Aviv 3 - 0 Maccabi Netanya
1-0 Barak Itzhaki ('75)
2-0 Viðar Örn Kjartansson ('82)
3-0 Viðar Örn Kjartansson ('90)

Landsliðsmaðurinn Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum þegar Maccabi Tel Aviv sigraði Maccabi Netanya í ísraelsku úrvalsdeildinni í fótbolta á þessu þriðjudagskvöldi.

Það tók Maccabi langan tíma að brjóta ísinn en það tókst loks á 75. mínútu þegar Barak Itzhaki skoraði.

Viðar Örn bætti svo við tveimur mörkum áður en leiknum lauk og lokatölurnar 2-0 fyrir Maccabi Tel Aviv. Viðar Örn er núna kominn með átta deildarmörk á þessu leiktímabili.

Viðar Örn og félagar eru í fjórða sæti deildarinnar en þessi sigur var mikilvægur upp á það að halda í við hin liðin sem eru fyrir ofan. Maccabi er tveimur stigum frá toppsætinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner