Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. janúar 2018 22:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lee Johnson: Langt frá því að vera búið
Mynd: Getty Images
„Ég er auðvitað mjög stoltur af liðinu mínu," sagði Lee Johnson, stjóri Bristol City, eftir 2-1 tap gegn Manchester City í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Bristol gaf toppliði ensku úrvalsdeildarinnar alvöru leik en City skoraði sigurmark sitt ekki fyrr en í uppbótartímanum.

„Ég er vonsvikinn að þeir skyldu skora svona seint en strákarnir voru magnaðir. Við komum hingað og reyndum að spila okkar leik og skapa vandamál fyrir þá, og það tókst."

„Það er bara hálfleikur og við erum enn inn í þessu. Við höfum sýnt heiminum að við erum góðir í fótbolta."

„Pep Guardiola sagði við mig að við spiluðum betur en mörg úrvalsdeildarlið sem kæmu á þennan völl. Við munum taka mikið úr þessum leik og læra af. Þetta er langt frá því að vera búið."
Athugasemdir
banner
banner
banner