Ítalíumeistarar Juventus hafa áhuga á að fá Matteo Darmian en talið er ólíklegt að hann yfirgefi Manchester United í þessum mánuði.
Ítalski landsliðsmaðurinn hefur verið í erfiðleikum í baráttunni um byrjunarliðssæti á Old Trafford á þessu tímabili og aðeins byrjað tvo deildarleiki.
Ítalski landsliðsmaðurinn hefur verið í erfiðleikum í baráttunni um byrjunarliðssæti á Old Trafford á þessu tímabili og aðeins byrjað tvo deildarleiki.
Juventus fylgist vel með gangi mála samvkæmt Tuttosport en talið er næsta víst að þessi 28 ára leikmaður yfirgefi United í sumar.
Darmian getur spilað sem bakvörður eða vængbakvörður og einnig sem miðvörður í þriggja manna varnarlínu.
Tuttosport segir að ólíklegt sé að United leyfi honum að fara í þessum mánuði en mjög líklegt sé að hann fari til Juventus næsta sumar.
Athugasemdir