Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. janúar 2018 16:09
Magnús Már Einarsson
Moritz Bauer í Stoke (Staðfest)
Moritz Bauer á sprettinum.
Moritz Bauer á sprettinum.
Mynd: Getty Images
Stoke hefur keypt hægri bakvörðinn Moritz Bauer frá rússneska félaginu Rubin Kazan.

Bauer er 25 ára gamall en hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Stoke.

Bauer er fljótur leikmaður sem Mark Hughes hefur verið á eftir undanfarnar vikur.

Hughes var rekinn frá Stoke um helgina en félagið ákvað hins vegar að klára félagaskiptin þrátt fyrir að hann sé horfinn á braut.

Stoke er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni en leit stendur nú yfir að eftirmanni Hughes.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner