Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. janúar 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
Styttist í að Hafsteinn Briem semji
Hafsteinn Briem.
Hafsteinn Briem.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Hafsteinn Briem er nálægt því að ganga frá samningi við nýtt félag.

Hafsteinn ákvað að yfirgefa herbúðir ÍBV eftir síðasta tímabil og hefur legið undr feld síðan þá. Hann er nú nálægt því að klára samninga við nýtt félag.

„Ég býst við að klára mín mál í þessari viku eða í byrjun næstu viku," sagði Hafsteinn við Fótbolta.net.

Hinn 26 ára gamli Hafsteinn kom til ÍBV frá Fram fyrir tímabilið 2015 og var lykilmaður hjá Eyjamönnum.

Hann varð bikarmeistari með ÍBV síðastliðið sumar auk þess sem hann fór í bikarúrslit með liðinu árið 2016.

Hafsteinn er uppalinn hjá HK en auk ÍBV og Fram hefur hann leikið með Val og Haukum á ferli sínum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner