Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. janúar 2018 11:31
Magnús Már Einarsson
Wenger hótar að sekta Iwobi
Iwobi er í vondum málum.
Iwobi er í vondum málum.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ætlar að sekta Alex Iwobi ef satt reynist að hann hafi verið í partý 36 tímum fyrir tap liðsins gegn Nottingham Forest um helgina.

Iwobi var í byrjunarliði Arsenal gegn Forest en myndband hefur birst á netinu þar sem hann sést dansandi og syngjandi. The Sun segir að myndbandið sé tekið klukkan 2:37 aðfaranótt laugardags, 36 tímum fyrir leik.

Partýið var í íbúð í Soho hverfinu í London. Samkvæmt frétt Sun var fólk meðal annars að nota kannabis efni í partýinu en ekkert bendir þó til þess að Iwobi hafi gert slíkt.

„Þegar þú lest fréttirnar þá er eins og hann hafi verið að taka eiturlyf. Hann var alls ekki að því," sagði Wenger en hann segir óásættanlegt ef að fréttirnar eru sannar. Þá á Iwobi von á sekt.

„Hann var í afmæli en hversu lengi var hann úti? Það er mikilvægast að komast að því. Eftir það tek ég ákvörðun."
Athugasemdir
banner
banner
banner