Laurent Blanc, þjálfari Paris Saint-Germain, segir að hann og varnarmaðurinn David Luiz hafi rætt málin og séu nú sáttir eftir atvik sem átti sér stað í 2-1 sigri liðsins gegn Marseille á sunnudag.
Brasilíumaðurinn neitaði að yfirgefa völlinn þegar Blanc ætlaði að skipta honum út af og setja Marquinhos inn á. Luiz virtist hafa meiðst og því ætlaði Blanc að taka hann út af en á endanum var Blaise Matuidi tekinn út af.

„Ég ræddi við hann á mánudagsmorgun. Við áttum mjög góðar samræður. Ekki bara góðar heldur mjög langar," sagði Blanc.
„Það var mikilvægt að ræða málið. Við þurftum að fá það á hreint hvað gerðist og vera hreinskilnir. Þetta var frekar langt samtal."
Athugasemdir