Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. febrúar 2016 09:30
Magnús Már Einarsson
Brendan Rodgers hefur hafnað fimm tilboðum í vetur
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers segist hafa hafnað tilboðum frá fimm félögum síðan hann var rekinn frá Liverpool í október.

Swansea vildi meðal annars frá Rodgers til starfa í desember eftir að Garry Monk var rekinn en Rodgers vill taka sér frí frá fótbolta í einhvern tíma.

„Ég hef fengið fimm tilboð síðan ég fór frá Liverpool og þau eru öll frá félögum sem ég ber virðingu fyrir. Ég vildi hins vegar taka smá frí, það er mjög mikið stress þegar þú ert í starfi," sagði Rodgers.

„Ég nýt þess að að vera í spennunni þegar ég er í starfi en þegar að ég fór frá Liverpool þá fékk ég tækifæri í fyrsta skipti í fimm ár til að setjast niður, fara yfir vinnuna mín og horfa á hvernig ég get bætt mig. Vonandi græðir það félag sem ég starfa fyrir næst á því."
Athugasemdir
banner