Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. febrúar 2016 11:02
Magnús Már Einarsson
Draumalið leikmanna sem geta farið frítt í sumar
Mynd: Sky
Sky hefur sett saman draumalið leikmanna sem verða samningslausir í sumar.

Nokkur þekkt nöfn eru þar á meðal en liðið má sjá hér til hliðar.

John Terry er á förum frá Chelsea og þá er óvíst hvað verður um Zlatan Ibrahimovic þegar samningur hans hjá PSG rennur út.

Joel Matip, varnarmaður Schalke, er í draumaliði Sky en hann hefur verið sterklega orðaður við Liverpool.

Þá er óvist hvað verður um Fernando Torres sem hefur verið í láni hjá Atletico Madrid frá AC Milan. Torres verður samningslaus í sumar og fer líklega í nýtt félag þá.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner