Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 09. febrúar 2016 15:30
Elvar Geir Magnússon
Guardiola: Lewandowski er fagmaður
Fagmaður.
Fagmaður.
Mynd: Getty Images
Framtíð pólska sóknarmannsins Robert Lewandowski hjá Bayern München hefur mikið verið í umræðunni síðustu daga.

Lewandowski hefur verið orðaður við Real Madrid og PSG. Fréttir hafa þó borist af því að hann sé í viðræðum við Bæjara um nýjan samning.

Þrátt fyrir alla þessa umræðu hefur Lewandowski haldið einbeitingu í starfi sínu hjá Bayern.

„Lewandowski er einn mesti fagmaður sem ég hef kynnst. Hann er aldrei meiddur og er alltaf tilbúinn að hjálpa liðinu," segir Pep Guardiola, þjálfari Bayern.

„Hann veit nákvæmlega hversu mikilvægt það er að vera í besta mögulega forminu, bæði líkamlega og andlega."

Lewandowski er með 19 mörk í 19 leikjum í þýsku deildinni á tímabilinu auk þess sem hann hefur skorað 7 mörk í 6 leikjum í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner