Francesco Guidolin, stjóri Swansea, segir að Gylfi Þór Sigurðsson hafi burði til að skora fimmtán mörk á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Gylfi hefur skorað sjö mörk á þessu tímabili en hann er með fimm mörk í síðustu sex leikjum Swansea.
„Ég var ánægður með að Gylfi skoraði aftur gegn Crystal Palace en ég var ekki hissa á því," sagði Guidolin.
„Ég tel að Gylfi geti skorað 15 mörk á tímabili því hann hefur hæfileikana og gáfurnar í það."

Gylfi skoraði níu mörk á síðasta tímabili með Swansea en miðað við stuðið sem hann hefur verið í að undanförnu þá er ekki ólíklegt að hann bæti þann árangur.
Athugasemdir