Hinn þrítugi Michael Oliver mun dæma úrslitaleik deildabikarsins milli Liverpool og Manchester City sem fram fer í lok mánaðarins.
Oliver hefur verið FIFA-dómari síðan 2012 en fyrsti deildarleikurinn sem hann dæmdi var D-deildarleikur milli Hereford og Grimsby Town 2007.
Þremur árum síðar dæmdi hann sinn fyrsta úrvalsdeildarleik, viðureign Birmingham og Blackburn í ágúst 2010.
Oliver hefur áður dæmd á Wembley, síðast undanúrslitaleik FA-bikarsins í fyrra þegar Aston Villa vann Liverpool.
Athugasemdir