Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. febrúar 2016 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Stórleikir í 8-liða úrslitum
Mynd: Getty Images
Það eru tveir spennandi leikir á dagskrá í þýska bikarnum í dag þar sem Bayer Leverkusen mætir Werder Bremen og Stuttgart tekur á móti Borussia Dortmund í 8-liða úrslitum.

Bayer Leverkusen er búið að slá tvö neðrideildalið úr leik á á meðan Werder Bremen er búið að leggja bæði Köln og Borussia Mönchengladbach að velli.

Stuttgart lenti í vandræðum í 16-liða úrslitum gegn Braunschweig, sem leikur í B-deildinni, og þurfti framlengingu til að vinna leikinn, en Dortmund hafði betur gegn Augsburg.

Það eru tveir aðrir leikir á dagskrá í 8-liða úrslitum bikarsins og verða þeir spilaðir á morgun. Þar á Hertha Berlin útileik gegn Heidenheim á meðan risarnir í Bayern München heimsækja Bochum.

Leikir dagsins:
18:00 Bayer Leverkusen - Werder Bremen
19:30 Stuttgart - Borussia Dortmund
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner