Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. febrúar 2016 11:46
Magnús Már Einarsson
Víkingur R. lagði fram tilboð í Gary Martin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. gerði tilboð í Gary Martin framherja KR á dögunum en þetta herma heimildir Fótbolta.net.

Tilboðið var ekki samþykkt og eins og staðan er í dag þá er Gary ekki á förum.

Orðrómur hefur verið um að Valur hafi líka gert tilboð í Gary en Ólafur Jóhannesson þjálfari liðsins neitaði því í samtali við Fótbolta.net í gær.

„Ég vildi óska þess að við værum að fá hann, hann er frábær fótboltamaður. Mér að vitandi þá er hann ekki að koma í Val," sagði Ólafur.

„Okkur var boðið að fá hann í fyrra og þá gerðum við tilboð en við erum ekki búnir að því núna."

Hinn 25 ára gamli Gary kom til KR frá ÍA sumarið 2012. Hann var markahæstur í Pepsi-deildinni 2014 en í fyrra átti hann ekki alltaf fast sæti í liðinu.
Athugasemdir
banner
banner