mán 09. apríl 2018 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Everton á höttunum eftir yfirmanni Alberts
Mynd: Getty Images
Everton hefur mikinn áhuga á að fá Marcel Brands til liðs við sig sem fyrst. Þetta staðfestir hollenska félagið PSV Eindhoven, sem Brands starfar fyrir.

Brands er yfirmaður knattspyrnumála hjá PSV og hefur gert frábæra hluti fyrir félagið á undanförnum árum.

Everton hefur verið að eyða háum upphæðum í ranga leikmenn og hefur félagið trú á því að Brands geti lagað vandamálið.

„Everton hefur sett sig þrisvar sinnum í samband við hann, einu sinni í ár og tvisvar í fyrra," sagði Toon Gerbrands, yfirmaður hjá PSV.

„Everton talaði við Marcel og hann talaði svo við okkur. Það hafa því engin formleg samskipti átt sér stað.

„Hann er augljóslega að íhuga starfstilboðið fyrst hann er búinn að hitta talsmenn félagsins nokkrum sinnum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner