Á morgun klukkan 16 að íslenskum tíma er komið að næsta leik íslenska kvennalandsliðsins í undankeppni HM. Þá mæta stelpurnar frænkum sínum frá Færeyjum í Þórshöfn en leikurinn verður 16:00 að íslenskum tíma.
Búast má við ójöfnum leik enda Ísland með miklu betra kvennalandslið en Færeyjar.
Búast má við ójöfnum leik enda Ísland með miklu betra kvennalandslið en Færeyjar.
„Staðan á hópnum er mjög góð. Það eru engin meiðsli og allir tilbúnir í slaginn. Okkur hlakkar til að takast á við þetta verkefni, verkefni sem snýst að mestu um okkur sjálf og hvaða útgáfa af íslenska landsliðinu við ætlum að sýna á morgun," segir Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari.
Varðandi byrjunarliðið á morgun:
„Ég geri einhverjar breytingar en ekkert rosalega margar. Það kemur í ljós á morgun. Ég ætla að sjá æfinguna aðeins. Fyrst og fremst mætum við hingað til að ná í þrjú stig en á sama tíma erum við sammála því að við getum gert ákveðna hluti miklu betur. Ég vil sjá það framkvæmt á morgun."
Hvernig er fyrir þjálfara að skipuleggja svona leik, gegn andstæðingi sem er einfaldlega ljósárum á eftir íslenska liðinu?
„Það er flókið. Þú þarft að finna innri „motivation". Við berum virðingu fyrir því sem verið er að gera í færeyskum fótbolta en okkar einbeiting er öll á okkar frammistöðu. Ég set gríðarlega miklu kröfu á að við skilum góðri frammistöðu á morgun."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar fer Freyr meðal annars út í stöðuna í riðlinum, baráttuna um sæti á HM og útskýrir hana lauslega.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir