Maccabi Tel Aviv 0 - 1 Hapoel Beer Sheva
0-1 Hanan Maman ('35)
Rautt spjald: Ben Bitton, Hapoel ('54)
Rautt spjald: Barak Itzhaki, Maccabi ('95)
0-1 Hanan Maman ('35)
Rautt spjald: Ben Bitton, Hapoel ('54)
Rautt spjald: Barak Itzhaki, Maccabi ('95)
Maccabi Tel Aviv tapaði þriðja leiknum í röð í úrslitakeppni ísraelsku deildarinnar.
Liðið mætti toppliði Hapoel Beer Sheva og komust gestirnir yfir með marki frá Hanan Maman í fyrri hálfleik.
Ben Bitton fékk sitt annað gula spjald snemma í síðari hálfleik og kom Viðar Örn Kjartansson inná skömmu síðar.
Heimamönnum tókst þó ekki að jafna leikinn þrátt fyrir að vera manni fleiri.
Hapoel er með sex stiga forystu á toppnum á meðan Viðar og félagar þurfa að snúa genginu við til að missa ekki af evrópudeildarsæti.
Athugasemdir