68 dagar í fyrsta leik Íslands á HM
Kolbeinn Sigþórsson, framherji Nantes, hélt í síðustu viku til Katar í meðhöndlun vegna meiðsla sinna. Franskir fjölmiðlar segja frá þessu.
Kolbeinn sneri aftur á fótboltavöllinn með varaliði Nantes í síðasta mánuði eftir eins og hálfs árs fjarveru vegna hnémeiðsla.
Í leik með varaliðinu meiddist Kolbeinn á nára og því spilaði hann ekki með íslenska landsliðinu gegn Mexíkó og Perú þrátt fyrir að hafa verið í hópnum.

Kolbeinn er í kapphlaupi við tímann til að komast á fulla ferð áður en HM hópur Íslands verður tilkynntur föstudaginn 11. maí.
„Það er æðislegt að ég eigi enn þann möguleika á að geta farið á HM," sagði Kolbeinn í viðtali við Fótbolta.net í Bandaríkjunum þann 21. mars. Á þeim tíma sagði hann um möguleika sína fyrir HM.
„Ég met þá bara góða. Aðalatriðið fyrir mig núna er að haldast heill. Það er hætta á að meiðast eftir svona langa fjarveru. Það er mikilvægt að halda mér heilum og passa mig á að það komi ekki bakslag. Þá er ég með tvo og hálfan mánuð til að byggja mig upp og ná að spila mikilvægar mínútur og að sjálfsögðu skora nokkur mörk. Ég ætla að koma mér í liðið hjá Nantes. Það er markmiðið mitt á þessum tímapunkti."
Athugasemdir