Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 09. apríl 2018 14:53
Magnús Már Einarsson
KR skoðar unglingalandsliðsmann frá Tansaníu
Adolf Bitegeko.
Adolf Bitegeko.
Mynd: KR
Adolf Bitegeko, unglingalandsliðsmaður frá Tansaníu, verður til reynslu hjá KR næstu dagana.

Þetta kemur fram á heimasíðu KR.

KR-ingar eru í æfingabúðum á Campamor á Spáni og Adolf mun æfa með liðinu þar.

Adolf er fæddur árið 1999 og getur meðal annars spilað á miðjunni en hann hefur spilað leiki fyrir yngri landslið Tansaníu.

KR hefur leik í Pepsi-deildinni föstudagskvöldið 27. apríl þegar liðið heimsækir Íslandsmeistara Vals.

Komnir:
Albert Watson frá Kanada
Björgvin Stefánsson frá Haukum
Kristinn Jónsson frá Breiðabliki
Pablo Punyed frá ÍBV

Farnir:
Garðar Jóhannsson hættur
Guðmundur Andri Tryggvason í Start
Michael Præst
Óliver Dagur Thorlacius til Gróttu á láni
Robert Sandnes
Stefán Logi Magnússon í Selfoss
Tobias Thomsen í Val
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner