Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 09. apríl 2018 18:55
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Íslendingarnir í Start töpuðu
Kristján Flóki náði ekki að skora í dag.
Kristján Flóki náði ekki að skora í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lilleström 1 - 0 Start
1-0 Thomas Olsen ('34)

Thomas Olsen gerði eina mark leiksins er Lilleström lagði Íslendingalið Start að velli í norska boltanum í dag.

Kristján Flóki Finnbogason og Aron Sigurðarson byrjuðu í framlínu Start og sat framherjinn efnilegi Guðmundur Andri Tryggvason allan tímann á bekknum.

Íslendingaliðið fékk fleiri færi í leiknum en færanýtingin var ekki nógu góð. Þetta er annað tap Start í röð eftir góðan sigur gegn Tromsö í fyrstu umferð og er liðið með þrjú stig úr þremur leikjum.

Þetta var fyrsti sigur Lilleström á tímabilinu og er liðið með fjögur stig eftir fjórar umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner