U16 ára landslið karla endaði í efsta sæti á UEFA Development Tournament í Litháen en síðasti leikurinn fór fram á laugardag.
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Búlgaríu en það var Bjartur Bjarmi Barkarson, leikmaður Víkings Ólafsvíkur, sem skoraði mark Íslands í síðari hálfleik.
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Búlgaríu en það var Bjartur Bjarmi Barkarson, leikmaður Víkings Ólafsvíkur, sem skoraði mark Íslands í síðari hálfleik.
Farið var í vítakeppnii þar sem Ísland vann 3-1. Danijel Dejan Djuric, Elmar Þór Jónsson og Orri Hrafn Kjartansson skoruðu mörk Íslands þar.
Hér að neðan má sjá mark Íslands á laugardag sem og mörkin úr vítakeppninni. Þess ber að geta að það vantar vítaspyrnuna sem Danijel Dejan Djuric tók.
Mörk U16 ára liðs karla gegn Búlgaríu á laugardaginn, en leikurinn fór í vítaspyrnukeppni að honum loknum.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) April 9, 2018
Þess ber að geta að það vantar vítaspyrnuna sem Danijel Dejan Djuric tók. pic.twitter.com/PreDNLu3vk
Athugasemdir