Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 09. apríl 2018 21:06
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Annað tap hjá Villarreal
Mynd: Getty Images
Villarreal 1 - 3 Athletic Bilbao
0-1 Inigo Cordoba ('4)
0-2 Inaki Williams ('51)
1-2 Carlos Bacca ('67)
1-3 Iker Muniain ('87)
Rautt spjald: Alvaro, Villarreal ('89)

Það gengur ekkert hjá Villarreal þessa stundina en liðið er í harðri evrópudeildarbaráttu og var að tapa öðrum leiknum í röð.

Villarreal tapaði óvænt fyrir Malaga í síðustu umferð og átti liðið skelfilegan leik gegn Athletic Bilbao í dag.

Gestirnir frá Bilbao voru mun betri í leiknum og komust yfir strax á fjórðu mínútu.

Inaki Williams tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik, áður en Carlos Bacca minnkaði muninn fyrir heimamenn.

Iker Munian innsiglaði sigur gestanna undir lokin, skömmu áður en Alvaro fékk sitt annað gula spjald fyrir að klappa kaldhæðnislega að ákvörðun dómarans.

Villarreal er í evrópudeildarsæti, einu stigi fyrir ofan Sevilla og þremur fyrir ofan Girona.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner