Malmö 1 - 1 AIK
0-1 Henok Goitom ('12)
1-1 Markus Rosenberg ('43, víti)
Rautt spjald: Franz Brorsson, Malmö ('58)
0-1 Henok Goitom ('12)
1-1 Markus Rosenberg ('43, víti)
Rautt spjald: Franz Brorsson, Malmö ('58)
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn á vinstri kanti Malmö í 1-1 jafntefli gegn AIK. Haukur Heiðar Hauksson var ekki í leikmannahópi AIK þar sem hann eignaðist stelpu í gær.
Leikurinn var afar bragðdaufur en Henok Goitom kom AIK yfir snemma leiks. Markus Rosenberg jafnaði svo úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé.
Lítið var um færi og spiluðu heimamenn síðasta hálftímann manni færri, þegar Franz Brorsson fékk sitt annað gula spjald.
Liðin eru tvö af bestu liðum sænska boltans og eru með fjögur stig eftir tvær umferðir.
Haukur Heiðar Hauksson (@haukurheidarh) is not involved in todays game as he became a father for the first time yesterday to little princess. Congratulations 🇮🇸♀️🚼🎊🎉 #TeamTotalFootball https://t.co/02QLry4Ynq
— Total Football (@totalfl) April 9, 2018
Athugasemdir