Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Meistaradeildarslagur í beinni
Laimer missir af leiknum í dag.
Laimer missir af leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
RB Leipzig mætir Bayer Leverkusen í stórleik sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.

Liðin mætast í meistaradeildarbaráttunni en aðeins eitt stig skilur liðin að í fimmta og sjötta sæti þýsku deildarinnar.

Leipzig er búið að vinna tvo í röð og er búið að vinna Bayern og Marseille í síðustu tveimur leikjum á heimavelli. Leverkusen er með eitt stig úr síðustu tveimur leikjum.

Leverkusen verður án Lucas Alario, sem er í leikbanni, og þá eru Lars Bender, Jonathan Tah og Joel Pohjanpalo tæpir vegna meiðsla.

Ungstirnið Konrad Laimer verður ekki með Leipzig vegna meiðsla og er Stephan Ilsanker tæpur. Marcel Halstenberg og Fabio Coltorti hafa verið lengi frá vegna meiðsla en eru að koma til baka og gætu komið við sögu í dag.

Leikur dagsins:
18:30 Leipzig - Leverkusen (Stöð 2 Sport 3)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 29 10 12 7 43 39 +4 42
7 Augsburg 29 10 9 10 47 46 +1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner