Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 09. apríl 2018 13:52
Magnús Már Einarsson
U16 kvenna byrjaði á öruggum sigri
Liðið í dag.
Liðið í dag.
Mynd: KSÍ
U16 ára landslið kvenna vann 3-0 sigur á Eistlandi í fyrsta leik liðsins á UEFA Development Tournament. Jana Sól Valdimarsdóttir úr Stjörnunni skoraði tvö mörk og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir úr Val eitt mark.

Ísland var mun sterkari aðilinn í leiknum og voru stelpurnar ekki langt frá því að skora fleiri mörk.

Næsti leikur liðsins er á miðvikudaginn þegar þær mæta Litháen, en sá leikur hefst klukkan 12:00 að íslenskum tíma.

Byrjunarlið Íslands:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (M)
Kristín Erla Ó. Johnson
Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz
Arna Eiríksdóttir
Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Clara Sigurðardóttir (F)
Birta Georgsdóttir
Ída Marín Hermannsdóttir
Jana Sól Valdimarsdóttir
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Tinna Harðardóttir
Athugasemdir
banner