,,Ef maður lítur heilt yfir leikinn þá er ég ánægður, ef það er leyfilegt að vera ánægður eftir tapleik. Mínir menn stóðu sig mjög vel og aþð munaði engu að við næðum engu stigi," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari KF eftir 2-1 tap liðsins gegn Fjölni í dag.
Atli Már Þorbergsson skoraði sigurmarkið þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en Lárus Orri vildi meina að Garðar Örn Hinriksson dómari leiksins hafi átt að vera búinn að flauta til leiksloka þá.
,,Ég get ekki sagt að hann sé búinn því að þetta er algjörlega í höndum dómarans. Það er ekki hægt að þræta við hann. Hann sagði þrjár mínútur en það var komið á fjórðu mínútu þegar hornspyrnan kemur."
,,Ég veit ekki hvernig þessar reglur eru, hvort það megi ekki flauta af þegar það eru hornspyrna. Ég veit ekki hvort það þyki ekki fair play eða hvað en mér finnst ekki fair play að þeir fái að taka hornspyrnu þegar leiktíminn er búinn og það gerist í enda beggja hálfleika. Garðar kemur örugglega til með að segja að það hafi verið nokkrar sekúndur eftir en það er kjaftæði því að það voru komnar fjórar mínútur yfir venjulegan leiktíma."
,,Ég er mjög ósáttur við þetta en svona er þetta. Við erum litla liðið og verðum það í öllum leikjum í sumar. Það er tilhneiging hjá sumum dómurum og verður þannig í sumar að það er auðveldara að dæma á litla liðið. Ef við spilum og berjumst svona þá eigum við eftir að reyta stig hér og þar."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir