Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. maí 2017 20:34
Magnús Már Einarsson
Auglýsing Icelandair fyrir EM fékk 12 stig á Twitter
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Icelandair frumsýndi í kvöld veglega auglýsingu fyrir EM kvenna í Hollandi í sumar.

Auglýsingin hefur vakið mikla lukku og fjölmargir hafa hrósað henni í hástert á Twitter. Eurovision umræðan tekur mikið pláss á Twitter í kvöld en auglýsingin hefur ekki síður fengið umtal.

„Látið aldrei mótlætið sigra. Óstöðvandi fyrir Ísland," segir í auglýsingunni.

Landsliðskonur Íslands koma við sögu í auglýsingunni en hægt er að horfa á hana hér að neðan.

Fyrsti leikur Íslands á EM í Hollandi er gegn Frakklandi þann 18. júlí.



Athugasemdir
banner
banner