Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, var að vonum ánægður eftir 2-1 sigur gegn ÍA í framlengingu í Borgunarbikarnum.
Eftir sigurinn eru Blikar komnir í 8-liða úrslitin og Oliver fagnar því.
Eftir sigurinn eru Blikar komnir í 8-liða úrslitin og Oliver fagnar því.
„Þetta var erfiður leikur. Við sköpuðum fleiri færi en þeir voru með mjög hættulegar skyndisóknir. Við komumst áfram í næstu umferð og erum mjög ánægðir með það," sgði Oliver eftir leikinn.
„Ég spilaði ekki síðasta leik út af kálfameiðslunum og eftir 100 mínútur voru þeir orðnir nokkuð stífir. Það er enginn draumur að taka 120 mínútur en við kláruðum þetta og ætlum okkur alla leið."
Athugasemdir