Völsungur 5 - 3 Álftanes
1-0 Rafnar Smárason (´7)
2-0 Elvar Baldvinsson (´15)
2-1 Andri Janusson (´25)
2-2 Andri Janusson (´27)
3-2 Jóhann Þórhallsson (´38)
4-2 Bjarki Baldvinsson (´50)
4-3 Andri Janusson (´55)
5-3 Bjarki Þór Jónasson (´61)
1-0 Rafnar Smárason (´7)
2-0 Elvar Baldvinsson (´15)
2-1 Andri Janusson (´25)
2-2 Andri Janusson (´27)
3-2 Jóhann Þórhallsson (´38)
4-2 Bjarki Baldvinsson (´50)
4-3 Andri Janusson (´55)
5-3 Bjarki Þór Jónasson (´61)
Einn leikur fór fram í 3.deildinni í dag þegar Völsungar fengu botnlið Álftnesinga í heimsókn.
Heimamenn byrjuðu betur og komust tveim mörkum yfir snemma leiks. Andri Janusson var í miklum ham í liði gestanna og jafnaði metin með tveim mörkum á jafnmörgum mínútum eftir rúmlega 20 mínútna leik en Jóhann Þórhallsson sá til þess að heimamenn hefðu forystu í hálfleik.
Bjarki Baldvinsson skoraði fyrsta mark síðari hálfleiks á 50.mínútu og fimm mínútum síðar fullkomnaði Andri Janusson þrennu sína en Bjarki Þór Jónasson gulltryggði sigur heimamanna á 61.mínútu.
Álftanes er því sem fyrr á botni deildarinnar með 6 stig eftir 14 leiki á meðan Völsungar eru í 4.sæti með 23 stig eftir 13 leiki og eiga góða möguleika á að komast upp um deild.
Markaskorarar af Úrslit.net.
Athugasemdir