Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. september 2014 20:30
Alexander Freyr Tamimi
De Boer telur að Suarez elski ennþá Ajax
Luis Suarez.
Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Frank de Boer, þjálfari Ajax, telur að framherjinn Luis Suarez sé enn ástfanginn af hollenska liðinu.

Suarez, sem gekk til liðs við Barcelona frá Liverpool í sumar, mætir sínum gömlu félögum í Ajax í Meistaradeildinni í vetur.

Auk Suarez munu leikmenn á borð við Zlatan Ibrahimovic, Gregory van der Wiel og Maxwell mæta sínum gömlu félögum í Meistaradeildinni, en Ajaz er með PSG og Apoel í riðli auk Barcelona.

,,Ég held að Suarez elski ennþá félagið," sagði De Boer við heimasíðu Ajax.

,,Hann náði mörgum góðum úrslitum fyrir okkur."

,,Zlatan heillar mann í hvert einasta skipti. Ég er viss um að hann vill vinna Meistaradeildina í ár."

Athugasemdir
banner
banner
banner