Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   þri 09. september 2014 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Línuvörðurinn Ganfield ekki með í næstu umferð
Mynd: Google
Línuvörðurinn Ron Ganfield verður ekki með í næstu umferð ensku Úrvalsdeildarinnar eftir lélega frammistöðu í 6-3 sigri Chelsea gegn Everton á Goodison Park.

Ganfield missti af miklu sem gerðist í leiknum, þá helst þegar Chelsea skoraði rangstöðumark og þegar Tim Howard snerti boltann með hendi utan vítateigs.

Graham Poll gagnrýndi frammistöðu Ganfield harkalega og sagði þetta verstu frammistöðu sem hann hafði nokkurn tímann séð hjá línuverði.

,,Við erum með 17 dómara og 36 aðstoðardómara þannig að við getum ekki látið alla dæma hverja einustu helgi," sagði talsmaður dómarasambandsins, sem heldur því fram að ummæli Poll og frammistöða Ganfield hafi engin áhrif á þessa ákvörðun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner